CV

maí 15th, 2006 Samúel Jón Gunnarsson

Starfsferill – Curriculum Vitae

Nafn: Samúel Jón Gunnarsson
Fæðingardagur: 11 Maí­, 1975
Hjúskaparstaða: Giftur Rebekku Helen Karlsdóttur
Börn: Hekla Alexí­a f. 2000 og Sölvi Blær f. 2003.

Starfsreynsla

2004-2007 Skýrr Hf Reykjavík

Kerfistjóri/Kerfisforritari
Starfaði sem kerfistjóri/kerfisforritari hjá Skýrr Hf. Starfið fól í sér daglegan rekstur á Oracle eBusiness Suite frá Oracle. Starfið krafðist mikillar skipulagningar þar sem hver viðskiptavinur er með þrefalt umhverfi (þróun, prófun og rekstrarumhverfi). Undirliggjandi stýrikerfi þessara kerfa er meðal annars unix/linux stýrikerfi ásamt algengustu open source hugbúnaður á markaði í dag ss. Apache og Jserv. Áætlanagerð er gegnir lykilhlutverki við að skipuleggja uppfærslur á raunkerfum.

2003 Höfuðstöðvar Danfoss Nordborg

Starfsþjálfun
Starfsþjálfun hjá höfuðstöðvum Danfoss í Nordborg. þar vann ég meðal annars við að umskrifa hugbúnað. Hugbúnaðurinn er notaður til þess að stýra kælipressum, lofræstikerfum ofl. yfir á Linux stýrikerfi, sem síðar mun verða flutt niður á smátölvu sem keyrir á embedded linux. Starfið felur einnig í sér að eiga samskipti við aðra tæknifæðinga á faglegum grundvelli.

2000-2004 Sønderskov násmsgarðurinn Sønderborg

Kerfisstjóri
Frá Júlí 2000 fram til byrjun árs 2004 vann ég sem kerfisstjóri í sjálfboðavinnu á násmsgarðinum sem ég var búsettur á. Starfið fól meðal annars í sér viðhald og uppsetningu á vef/póstþjónum ásamt almennri þjónustu til notenda. Þess má geta að notað var linux stýrikerfi á þessum þjónum.

1998 Hljómsýn Akranes

Viðgerðir og þjónusta
Í u.þ.b. 6 mánuði vann ég við viðgerðir og þjónustu hjá Hljómsýn raftækjavöruverslun. Starfið fól meðal annars í sér viðgerðir á sjónvörpum og videotækjum ásamt almennum þjónustustörfum

1995-1998 Haraldur Böðvarsson Akranes

Vinnslustjóri / Háseti / Aðstoðar Matsveinn.
Árið 1995 hóf ég störf sem aðstoðarmatsveinn á frystitogaranum Höfrungi III. Þar vann Ég mig upp í háseta og starfaði undir lokin sem vinnslustjóri.

1992-1995 Sjóstangaveiðibáturinn Andrea Akranes

Háseti/Skipstjóri.
Á árunum 1992 – 1995 vann ég sem háseti/skipstjóri á sjóstangaveiðibátnum Andreu á sumrin.

Menntun

2000-2004 Syddansk Universitet (SDU) Sønderborg

Ingeniøruddannelse/Dataingenør.
Haustið 2000 hóf ég nám í  tæknifræði við Syddansk Universitet, Sønderborg. Janúar árið 2004 útskrifaðist ég þaðan sem rafmagnstæknifræðingur með áherslu á forritun og gagnaúrvinnslu sem aðalfag. Fyrir utan þau sérfög sem einskorðast við brautina þá er meðal annars kennd stærðfræði, eðlisfræði og rafmagnsfræði sameiginleg með hinum námsbrautunum þ.e véltækni, útflutnings og framleiðslutæknifræði.

1999-2000 Syddansk Universitet (SDU) Sønderborg

Adgangskursus – Undirbúningur fyrir tæknifræðinám.
Haustið 1999 hóf ég undirbúningsnám til tæknifræðináms við Syddansk Universitet í Sønderborg. Þetta nám veitir nauðsynlegan skilnig á stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði, dönsku, ensku og þýsku. Námið svarar til frumgreinadeildar Tækniháskóla Íslands.

1993-1994,1999 Iðnskólinn í Reykjavík Reykjavík

Iðnskólinn í Reykjavik
Haustið 1993 hélt ég áfram með nám í rafeindavirkjun við Iðnskólann í Reykjavík. Tók mér hlé frá 1995 til 1999. Árið 1999 tók ég upp þráðinn á ný en lauk ekki náminu vegna þess að ég flutti út til Danmerkur til þess að nema tæknifræði.

1992-1993 FVA Akranes

Grunndeild Rafiðna.
Haustið 1992 hóf ég nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í rafeindavirkjun.

Áhugamál

Undanfarin ár, eftir að ég hóf nám í tæknifræði hefur mitt stærsta áhugamá¡l verið námið sjálft. Þar fyrir utan hef ég mikinn áhuga á forritun almennt og uppbyggingu stýrikerfa, netkerfa og samskiptastaðla. Þekking mín í garð Windows sem og Linux stýrikerfa er mjög góð. Eins og áður hefur komið fram þá var ég kerfisstjóri á Sønderskov námsgarðinum sem einnig er hluti af mínu áhugamáli.

Tungumál

Fyrir utan móðurmálið tala ég reiprennandi dönsku, ensku og hef grunnleggjandi lestrar og hlustunarskilning í þýsku.

VN:F [1.9.3_1094]
Rating: 0 (from 0 votes)
pixelstats trackingpixel
Comments are closed.